Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Atburðarteljari

Gagnasafn

Ég er hætt!!!!Birgitta Þura Birgisdóttir

Ég er aftur búin að færa mig yfir á blog.central ! Ég er hætt þessu bloggar rusli, ekki einu sinni hægt að setja myndir inn! en well.. síðan mín er núna www.blog.central.is/bridzan Svalur

Mikið búið að vera að gerast! :DBirgitta Þura Birgisdóttir

Wellwellwell.. það er mikið búið að vera að gerast á skaganum um þessar mundir :D Ég og Regína náttúrulega byrjaðar á fullu í einkaþjálfun :) Gengur bara mjög vel :)

Í síðustu viku voru opnir dagar, maður gerði margt skemmtilegt, eða þannig.. ég fór semsagt í samhristing og leikhús og svona .. á pabbann, sem var alveg ágætt svona, meira svona skemmtun bara :)

Á fimmtudaginn var svo árshátíð í skólanum og auðvitað keypti maður sér eitthvað fyrir hana :) Keypti mér svartan plain kjól, var með rautt belti, rautt hálsmen og í rauðum geðveikum skóm.. svo fór ég í förðun til Önnu Siggu og svona :) en árshátíðin var fín bara, ágætur matur og svona..
Svo um kvöldið var ballið, það var bara nokkuð fínt sko, skemmti mér allavega mjög vel og svona :) Svo fór ég bara ein heim eftir það :( No Arnór, því hann þurfti að fara að vinna morguninn eftir.

Svo var Ungfrú Vesturland 2007 á laugardaginn, fórum uppí bíóhöll um svona níu leytið, byrjaði ekki fyrr en hálf tíu.. var maður orðinn alveg veeel íðí þegar þetta var búið :D Í 3. sæti var Fríða Ásgeirsdóttir, 2. sæti var Helena Rúnarsdóttir og í því fyrsta var Agla Harðardóttir! Til hamingju með þetta :*

Svo var ball á breiðinni eftir keppnina, það var alveg ágætisball sko.. skemmti mér ágætlega bara :)

ÆTLAÐI BARA AÐ LÁTA VITA AÐ ÉG ER ÓGEÐSLEGA PIRRUÐ OG GET EKKI SETT MYNDIR INNÁ SÍÐUNA!!!! :@:@ ef einhver getur séð sig fært um að kenna mér á þetta drasl þá er ég Game!!

Jámm.. svona er þetta víst.

Hef ekkert mikið meira að segja, en skilaboðin hér að ofan! PLÍS!!! :)


Hæj :)Birgitta Þura Birgisdóttir

Hæhæ ágæta fólk !

Það er ekkert mikið búið að gerast hjá mér undanfarið nema bara jújú, skólinn og vinna.

Á síðustu helgi var partý hjá mér.. og það var bara ekkert smá skemmtilegt sko. Smááá drama í gangi þarna sem var reyndar ekkert svo skemmtilegt en við skulum ekki fara meira út í það hér! :)

Fór í ræktina áðan með Regínu og svo fórum ég, Regína og Oddný allar saman í sturtu geggjað fjör! ...eða ekki ;P
Fór svo að vinna með Oddný frá 18-22 og var það bara ágætisvakt.. fórum svo að rúnta til hálf tólf sirka :)

Úff já, ég er að fara að vinna um helgina svo við sjáum bara til hvort það verði eitthvað djamm og þar sem Arnór minn er hættur í skóla til að afla sér fjár er hann að vinna miklu meira en vanalega!

Anyways.. þá er útborgunardagur á morgun, voðalega notalegur mánuður sjáiði til og frekar stutt í útborgunardag frá 1. febrúar :D þannig maður á alveg pening eftir!

En eins og ég segi þá var þetta ekkert sú skemmtilegasta færsla sem ég hef gert.. en þið verðið bara að sætta ykkur við það ! :)

En það eru 54 dagar þangað til ég verð sjálfráða, 27 dagar þangað til Regína verður sjálfráða oogogog 24 dagar þangað til Oddný verður uu.. 17 ára! þá fær hún bílpróf :D Vorum einmitt að tala um það áðan.. (er bara að reyna að segja eitthvað hérna.....)

Svoo ég hætti nú þessu bulli þá ætla ég að kveðja ykkur að sinni ! ;) ;*

Endilega commenta.. bara eitthvað smá !

Fim 1.3.2007

 Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þér er einnig ráðlagt hér að skilgreina markmið þín betur og reyna að einblína á hvert skref fyrir sig í átt að markmiðum þínum. Vegamót birtast og leiðin fram á við skal tekin. Birtan hér færir þér óskir þínar fyrr en varir.

Sorgarfréttir oog eitthvað .. =/Birgitta Þura Birgisdóttir

Ég vil byrja á að segja ykkur sorgarfréttir, hann Óli verslunarstjórinn okkar fyrrverandi er dáinn :'( .. guð geymi þig!! Þetta gerðist allt svo hratt.. tvær vikur að gerast eitthvað svona fyrir frábæran mann sem maður þakkar fyrir að hafa kynnst! honum.
Ég hef svosem ekkert meira að segja en þetta.. Ég og Oddný vorum að vinna í gær þegar okkur var sagðar þessar sorgarfréttir, Inga kom og sagði okkur þetta, það má segja að við hefðum fengið svona nett áfall .. og grétum við og tilheyrandi. Hvíldu í friði elsku Óli okkar! :'(


Ég hef ekkert mikið meira að segja samt.. við erum öll bara voðalega dofin og svona, eins og gerist ósjálfrátt..
Mamma og pabbi koma heim í dag þannig ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ég sé að fara að sofa ein heima aftur.. nema þegar þau fara kannski aftur út? .. Aldrei að vita hvað þau ákveða.

Ég hlakka til að fá þau heim ;)

Ég og Arnór fórum á Alomst Famous á sl. sunnudag, það var bara nokkuð gott.. en það var einhver að segja að þessi sýning hafi misheppnaðst svo mikið.. það er sagt að önnur sýningin er oftast verst, svo ég er að pæla í að fara aftur =o.

En í dag er ég að fara að vinna, ekki besta andrúmsloft í heimi þarna uppi í Olís núna en við látum okkur hafa það! .. Verðum að vera sterk.


En ég vildi bara láta ykkur vita af þessu :)

Kveð ykkur að sinni! bæbæ :*




Þri 20.2.2007

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Biddu hjarta þitt um leiðsögn og veldu rétt fyrir sjálfan þig. Opnaðu hjarta þitt fyrir þeim sem sýna þér skilning og virðingu og finndu hvað það eflir þig þegar þú ákveður að tileinkar þér það. Þú ættir ekki að vernda þig með því að loka þig inni í eigin brynju, opnaðu þig ef þú mögulega getur.









hellúúw ;)Birgitta Þura Birgisdóttir

Hæhæhæ ! ;)

Hjá mér er mikið búið að vera að gera bæði í vinnunni og skólanum, er mikið að vinna núna vegna Óla :'( .. sem fékk 2 heilablóðföll í viðbót hinum megin, svo það er miklu meiri líkur á að hann vakni ekki til lífs aftur! og það er ekki gaman að hugsa um það :( ..

En nóg um það..

..Mamma og pabbi skunduðu til Kanarý í viku.. og ég er ein heima í viku ;O þau koma á þriðjudaginn næsta! =)
.. Á miðvikudaginn var Valentínusardagur ;) .. "dagur ástarinnar
Koss"
Arnór gaf mér þrjár rauðar rósir útaf við erum búin að vera saman í þrjú ár .. og tvo mánuði reyndar :)
En þetta var æðisleg gjöf og ég var mjög ánægð með þetta. Ég gaf honum myndaramma með fullt af myndum
af okkur í, ógisslega töff ;) oog spil svona "52 ways to say I love you" ;D *væmn* en hann var mjög ánægður með
það líka :) Svo um kvöldið fórum við í bíó á myndina Perfume; the story of a murder.. hún var alveg ágæt, ótrúlega asnaleg
reyndar.. kom svoldið á óvart hvað hún var asnaleg.. heh, en hún var heilir tveir og hálfur klukkutími! .. een já svo svaf ég heima hjá Arnóri svo ég þyrfti ekki að vera home alone :D

..Í gær var ég að vinna frá hálf fjögur til sex og þá fór ég að borða hjá Regínu kjötfarsbollur og kál og brúnni sósu ooog feiti :D það var geðveikt gott sjáðu til.. svo um sjö leytið lögðum við af stað til Reykjavíkur (Ég og Regína) og fórum að sjá myndina pursuit of happyness, mjög góð mynd, vel leikin oog vá hvað sonur hans Will Smith eer mikið krúúttt!! .. svo eftir þessa mynd keyrðum við heim og tókum spólu sem heitir John Tucker must die ég var reyndar búin að sjá hana áður een við fórum heim til Regínu til að ná í náttföt og svona því hún vildi passa mig útaf ég er ein heima ;D djóók, hún gisti bara hjá mér hehe.. en jáms svo fórum við heim og horfðum á myndina og sofnuðum svo.. svo vöknuðum við aðeins yfir átta og tókum okkur til fyrir æðislegan skóla og fórum svo í skólaannn og hér er ég ! Í náttúrufræðitíma með Gumma Bö og Rögnu Lóu.. alveg hevý stuð! .. En svo er ég að fara í litun og strýpur í dag og svo vinna kl sex til tólf með Robba Disco ;) ..

Svo verð ég að fara að sjá leikritið fræga Almost Famous í næstu viku ! Ég hlakka til :D :*

En endilega commentiði og verið geðveikt töff ;) ;*


Fös 16.2.2007

 Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú veist hvenær þú hefur á réttu að standa og innst inni skynjar þú eðlilega rás atburða kæra naut. Sönn auðvitund þín er hæfileiki sem þú ættir að nýta betur en þú ert fær um að fá það sem þig vanhagar um, allt sem þig vantar, með sem minnstri fyrir höfn þegar stjarna þín er skoðuð. Frelsið til að skapa umlykur þig hér að sama skapi. Hugaðu að því jákvæða öllum stundum.


Lélegur bloggari ég.. =/Birgitta Þura Birgisdóttir

Ég á ekki til orð hvað ég er lélegur bloggari! Verð bara að biðjast afsökunar á þessu :)

En allavega það sem ég er búin að vera að gera að mér þessa dagana er að vinna, vinna og aftur vinna og smá skóli og sofa og borða kannski líka.. get víst aldrei hætt því ;)


Ég er alveg sátt að vera að vinna svona mikið, en það er kannski sorgarástæða fyrir því, því að verslunarstjórinn okkar hann Ólafur blessaður fékk heilablóðfall síðastliðinn laugardag :'( og hans er sárt saknað í Olís, ekki er vitað hvort hann nái einhverjum bata aftur, en nóg um það.. ég ætla ekki að fara að slúðra einhverju svona á netið!! Vonandi nær hann fullum bata þó svo að alls ekki miklar líkur séu á því .. :'(

Svo er skólinn ágæti.. jesús, mér finnst eins og ég sé komin aftur í grunnskóla.. mér gekk alltaf svo illa í grunnskóla og ég er ekki frá því að ég sé að fara í sama far aftur! :/ en ég ætla ekki að láta það gerast! Ég veit að það gerist ekki ;) *hugsajákvættþágenguralltvel* :D

Ég var að vinna á fimmtudaginn, föstudaginn, laugardaginn, sunnudaginn, mánudaginn og svo í kvöld miðvikudag.. það er búið að vera alveg ótrúlega fínt bara.. svo er lööng fríhelgi framundan svo ég er alveg helsátt.. ætla að detta feitann í það á föstudaginn ;D hlakka geðveikt til..

Ég, Oddny, Erna og Lísbet ætlum til Reykjavíkur á morgun, ég ætla að versla mér eitthvað í fataskápinn minn þar sem hann er liggur við alveg "tómur" .. jájá, mér finnst það!! :D jáá og svo ætlum við að skella okkur á Dreamgirls í bíó.. vona bara að hún sé góð =)

Ég og Regína erum búnar í einkaþjálfun og ég myndi segja að ég hafi staðið mig alveg þokkalega vel sko.. veit ekki með Regínu þvíí hún vildi ekki segja mér neitt.. ;D mér er samt alveg sama.. þarf ekkert að vita ;)
Við erum að fara aftur eftir sirka tvær vikur þegar hún er búin á öllum þessum leiklistaræfingum og svona, hlakka til!

En well.. hef ekki mikið meira að segja nema LAXDÆLA MÁ ROTNA!!! oog ég held að ég verði að fara að leggja mig.. daanke schun og við sjáumst ;**


Jessöríí.. Ball og Patrekur 1,5 ;DBirgitta Þura Birgisdóttir

Jáááw.. allt að gerast í skólanum .. eða þannig! Það var ball núna á föstudaginn vorum bara nokkur heima hjá mér fyrir ballið og það var alveg ágætt, nema ég held sterklega að áfengi sé farið að hafna líkamanum mínum :/ sem er alls ekki gott! Ég drakk alveg þrjú glös af vodka í sprite og svona 6-7 skot af einhverju epla sulli, en fann ekkert á mér.. en allavega fórum við nú samt á ball og það var alveg fínt sko nema það var verið að segja að þetta væri síðasta ballið á önninni útaf það var brotið einhverja 8 glugga og svo voru allir að slást ! Hvað er að þessu liði að geta ekki hamið sig þótt það sé með áfengi í blóðinu, að þurfa endilega að eyðileggja fyrir öðrum! :( Skammist ykkar bara!

En núna í kvöld fórum ég og Arnór á leikritið Patrekur 1,5 og var það bara geðveikt skemmtilegt sko, bara hevý góðir leikarar þar á ferð! sé sko ekki eftir þessum 3000 kalli ;)

En núna erum við skötuhjúin bara að nördast í tölvunni, hann í sinni og ég í minni.. bara geðveikt gaman ;D en ég er allavega farin að horfa á dvd ;) Við sjááumst og hagið ykkur! :*

Jæja þá í þetta sinn ;)Birgitta Þura Birgisdóttir

Well, well, well... þessa dagana er ég búin að vera að jafna mig í tungunni og taka mig á í mataræðinu ;)
Ég og Regína byrjum í einkaþjálfun á morgun og svona geðveikt stuð.. erum búnar að vera nokkuð duglegar á þessu sko.. held þetta heppnist alveg ágætlega barasta! .. jám, við prufuðum smá tíma á mánudaginn síðasta þúst bara svona viktun og mælingar og svona og svo fór ég smá á hjólið og hún skíðatækið og fookk hvað þetta var erfitt.. mér er farið að kvíða fyrir að byrjaÞögull sem gröfin en árangurinn verður mikill ef við stöndum okkur ;)


Já.. skólinn ekki alveg að gera sig! skil hvorki upp né niður í stærðfræðinni.. horn og þríhyrningar bleh ?
alltof erfitt fyrir minn litla bauna heila :D og jáá nýjasta "slúðrið" um mig núna er að ég er bara að fara að taka þátt í ungfrú vesturland.. jááá ég heyrði það bara í gær sko, hef ekki heyrt meiri bull og vitleysu! Skaginn.. jáá, verð víst bara að taka skaganum eins og hann er..

Annars fór ég bara að vinna kl hálf fimm í dag til tíu í kvöld og svo um ellefu leytið fórum ég og Regína í 40 mínútna göngutúr það var bara mjög hressandi verð ég að segja :) en well ég ætla að fara að sofa svo ég vakni í Íslensku hjá henni Bjarnveigu í fyrramálið LAXDÆLA OJJ!! but góða nótt :*

Aldrei hefði ég trúað þessu uppá mig en...Birgitta Þura Birgisdóttir

..ég og Regína erum búnar að fá okkur gat í tunguna!!! I can't believe it! Við með gat í tungunni ?? fokksjitt skrýtið að hugsa um það! en núna er ég orðinn þvílíkur pönkari, með tvö tattú, gat í naflanum og gat í tungunni ! haha :D heeelll skrýtið og ekkert vont, engan veginn! mæli með að fá sér svona þar sem þetta er ekkert vont oog geðveikt flott :D en vildi bara deila þessu með ykkur bæjó :*

Jólin búin og skólinn að byrja aftur...Birgitta Þura Birgisdóttir

Jæja.. gleðilegt ár kæru landsmenn og þakka fyrir það gamla =* Vonandi verður þetta ár muun betra en það gamla! alltaf hægt að breyta einhverju en jáá.. það sem ég er búin að vera að gera síðustu daga er að vera mest bara með Arnóri.. og á laugardagskvöldið þá héldum við smá partý heima hjá mér oog þar voru Siggi, Unnur, Regína, Alli, Beggó, Bergur, Sindri og Sindri ooog ég og Arnór.. það var alveg fínt bara, ég fékk mér ekki nema hálfan bjór það var alveg bara mjöög fínt nennti ekkert að vera að drekka neitt mikið þar sem ég og Regína erum að fara í einkaþjálfun!!! hjá Kristínu í Ozone ! við byrjum á næsta mánudag og það verður bara æði sko :D ég kom heim bara í hádeginu og fór í skólann.. í tvo tíma, ensku og stærðfræði en það voru samt bara stuttir tímar :) svo eftir það náði ég í Regínu og við fórum útí bókabúð að kaupa bækur oog svona stuð.. svo heim til mín að borðaa (hollt;P) og svo lúlluðum við smá í sófanum oog svo fór hún heim og við förum kannski útað labba í kvöld ;D endum örugglega bara á wrúntinum! hehe. Weelll ég hef ekki meira að segja í bili ! :*

Síða 1 af 2

Teljari

Leit

Innskráningar kubbur

Könnun

Ég eða ég?

Klukkan